13.1.2009 | 01:09
Heimstímið
Við erum lagðir af stað heim nánar tiltekið komnir á klakann en gerum stutt stopp í höfuðstaðnum, verðum komnir á fullt í daglega lífinu um miðja vikuna. Enn tekur við bið eftir næsta fríi en í millitíðinni leggjumst við feðgar á bæn og biðjum um heeeeeeelling af snjó svo hægt verði að skíða og sleðast alveg þar til verður aftur orðið hjólafæri.
En sumarhúsið okkar er ekki fullbókað til vors svo endilega hafið samband ef þið hafið hug á fríi á Kanarí.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.1.2009 | 18:55
Að vera karlmaður
Það hlýtur að snúast um það að harka af sér og standa spertur hvað sem á dynur, við feðgar erum sko ekkertt að gefast upp. en viðurkennum þó fúslega að við söknum fólksins okkar.
Það er ströng vinna að drullast framúr á morgnana og drattast niðrá strönd.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
3.1.2009 | 17:29
Gleðilegt ár
Það er gott að hafa einn stórann með sér þegar farið er í RISA rússíbana !
Við Ísak erum annars orðnir einir aftur, við byrjuðum þetta einir og klárum þetta einir einsog karlmönnum sæmir, þó vissulegu söknum við Unnar og Jónatans sem fóru heim í dag við ætlum samt að harka af okkur í 10 daga ennþá í sólinni og biðjum fyrir kveðjur heim.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.12.2008 | 17:47
28. des, hiti 23 gráður.
En semsagt við erum hér við góða heilsu og biðjum að heilsa öllum heima. Læt hérna fylgja mynd af ströndinni frá í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.12.2008 | 17:22
Gleðileg jólin
Fjöldi fólks hefur haft samband og óskað eftir að við létum vita af okkur, málið er bara að letilífið hefur algerlega heltekið mannskapinn og það nennir enginn að kveikja á tölvu hérna. En þar sem ég var orðinn rúmlega medium á báðum hliðum í dag þá varð ég að flýyja í hús og viti menn ég er sestur við skriftir.
Jólin eru búin að vera ósköp ljúf það sem af er og við búin að hafa það alveg ljómandi gott og höfum hugsað okkur að eiga náðuga daga hér áfram næstu 2-3 vikurnar eða svo.
Veðrið var í slakari kantinum fyrst til að byrja með, rétt lafði í tæpum tuttugu en er búið að vera 22-26 í gær og dag.
Drengirnir á leið í matinn á aðfangadagskvöld.
bestu kveðjur frá okkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.12.2008 | 23:32
Það gerist ekki betra
Beint úr sleða og brettafæri fórum við í hlýinda helgi með þurrum auðum þjóðvegum sem nýttist ljómandi vel til að byrja tilkeyrslu á nýjasta fáknum í skúrnum. Og þar sem lífið er ekki bara leikur....... heldur líka dans á rósum þá fór ég beint í að pakka niður stuttbuxum, bolum og sólarvörn fyrir okkur feðga þar sem næsta mál er að takast á við FJÓRAR VIKUR á Gran Canaria. Þegar við komum heim um miðjan janúar vonast ég til að við verðum bænheyrðir og okkar bíði skíða og vélsleðasnjór í meira magni en nokkru sinni fyrr.
Vona að aðventan taki mjúklega á ykkur og jólin sömuleiðis.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.11.2008 | 19:52
Brottför 17. des !
Jólafríið hefst s.s. eftir fjórar vikur sléttar og er tilhlökkunin umtalsverð.
Smellið á eftir farandi til að sjá okkur feðga á ferð í Skotlandi http://st1300.blog.is/blog/st1300/video/5740/
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2008 | 16:40
Dagur 30.
6081 kílómetra síðar stöndum við aftur á hlaðinu heima ! Þetta er búið að vera hreint frábært ferðalag og við vorum ekkert á því að hætta, best hefði verið að henda í eina þvottavél og halda svo áfram í mánuð enn. Núna taka við 11 mánuðir af dagdraumum og undirbúningi fyrir næstu ferð.
Þessi er tekin nyrst í Skotlandi með Orkneyjar í baksýn, á þessum punkti byrjuðu þeir Mcgregor og Boorman "Long way down" túrinn á sínum tíma.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.6.2008 | 15:02
Dagur 28.
17.juni.
Komum i gaerkvold hingad upp til Thorso sem er vid hlidina a ferjuhofninni, komum okkur inna hotel thar sem Ari og Erna voru fyrir. Svafum ut i fyrsta skipti i langann tima i morgun og forum sidan i hjolatur um nagranna sveitirnar, hrifning okkar a Skotlandi er ekkert ad minnka landid er hreint otrulegt. Eigum maetingu i ferjuna kl half fimm i fyrramalid og verdum vid morgundaginn i hafi ef fra er talid sma stopp i faereyjum, svo er thad Seydisfjordur um midjan dag a fimmtudaginn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.6.2008 | 13:50
Skotland nr 1
24. dagur
Fostudagurinn for i sveita akstur a Englandi og endudum vid i BB gistingu i einhverjum "Kopavogi" vid Glasgow i Skotlandi.
25. dagur
Ut ad vesturstrond Skotlands og sidan afram nordur eftir endudum i frabaerri heimagistingu hja uppgjafa fraktara velstjora lengst uti i sveit.
26. dagur
Byrjudum daginn a safni vid Loch ness en skrimslid thar er vist fraegara en Lagarfljotsormurinn og Skrudsbondinn til samans ! Thadan forum vid i hringferd um einbreida vegi ut med strondinni, hreint frabaert svaedi sem gestgjafi gaerdagsins maelti med fyrir okkur. Endudum sidan a hoteli nidur vid sjoinn sem var halffullt af motorhjolafolki.
27. dagur manudagur
Erum ad fikra okkur nordureftir i att ad Scrabster thar sem vid tokum ferjuna, thessu fer nefninlega thvi midur ad ljuka. Skotland er komid i topp saetid yfir bestu hjola londin, ad geta keyrt allan daginn a einbreidum vegum med utskotum er alveg olysanlegt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)